Kaupsamningur og afsal er yfirleitt sama skjalið og er ætlað kaupanda og seljanda sem staðfesting á viðskiptum þeirra. 

Venjan er að taka fram  ef einhverjir gallar eru á bifreiðinni. Og því gott að hafa ef ágreiningur kemur upp um ástandið eftir að sala fer í gegn. 

Á kaupsamningi koma fram aukahlutir, verð, ástand ökutækis , ábyrgðarmál og allar  helstu upplýsingar um ökutækið og kaupanda/seljanda. 

Eigandaskipta geta farið í gegn eingöngu með kaupsamningi ef ekki næst í seljanda.